Bara svona aðeins…
December 29, 2006
Nú fyrr í kvöld átti ég frábæra kvöldstund á Berugötunni, þar sem Unnsteinn Arason fræddi okkur Hörð, Heiðar, Rúnar og mig, um gamla tíma og sagði okkur óborganlegar “lókalisma” sögur. Svo voru svalirnar góðu brúkaðar að vanda. Ég hafði saknað svalanna.
Myndavélin er komin í hús og var hún reynd á Berugötunni áðan. Þessi mynd af Herði fannst mér standa uppúr. Hann er spurull, samt þenkjandi, viss en samt óviss. Hörður í hnotskurn.
Ég er búinn að vera síðustu daga á Selfossi, sem fínasti bær og þar er gott að vera. Ég hef verið lengi fylgjandi þeirri skoðun, alveg frá því að þegar við vorum í 10.bekk og fórum þangað í skólaferðalag.
Þeir sem vilja nálgast myndina af Herði í stærri upplausn og betri gæðum, hafið samband við mig og við getum rætt um verð. Verst að jólin eru liðin, því að myndin hefði verið mjög hugguleg í jólapakkann.

Svo verður þessi líka að fara með, fyrir þá sem hafa ekki séð mig í lengri tíma.
Jólablogg
December 24, 2006
Aðfangadagur kominn. Ég hef bara hreinlega ekki haft neinn í að láta undirbúninginn síast inn, ég var bara að klára prófin á dögunum og fyrr en varir eru komin jól. Ég er svo líka löngu hættur að skrifa harða þjóðfélagsgagnrýni á þetta blogg, annaðhvort er ég búinn að sætta mig líðandi ástand eða bara hef gefist á upp á öllu rausi.
Ég fór í stúdentsveislu hjá Bjarna og Gunnari á föstudag, það var mjög gaman og komumst við heim á endanum eftir vonskuveður. Annars var Baldur frændi að kaupa fyrir mig Canon EOS 400d og tvær linsur í fríhöfninni, hlakka til að prufa græjuna, lifi efnishyggjan og kapítalið.
Hvar maður verður um áramótin er óráðið, það er víst skemmtistaðahallæri í heimabyggðinni þetta árið og vinir og vandamenn eru í öngum sínum að reyna að hagræða örlögum sínum á gamlárskvöld. Ég held að menn þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu.
Arnar Þór varð á dögunum stúdent. Mér finnst það ótrúlegt!
ps. Ég man í sumar kom ég því að orði við Hörð að mér fannst ég ekki eins póetískur í hugsun og vel máli farinn. Hörður sagði að þetta væru sígaretturnar. Hvað sem því líður þá óska ég mér orðaforða í jólagjöf.