Bara svona aðeins…

December 29, 2006

HodzNú fyrr í kvöld átti ég frábæra kvöldstund á Berugötunni, þar sem Unnsteinn Arason fræddi okkur Hörð, Heiðar, Rúnar og mig, um gamla tíma og sagði okkur óborganlegar “lókalisma” sögur. Svo voru svalirnar góðu brúkaðar að vanda. Ég hafði saknað svalanna.

Myndavélin er komin í hús og var hún reynd á Berugötunni áðan. Þessi mynd af Herði fannst mér standa uppúr. Hann er spurull, samt þenkjandi, viss en samt óviss. Hörður í hnotskurn.

Ég er búinn að vera síðustu daga á Selfossi, sem fínasti bær og þar er gott að vera. Ég hef verið lengi fylgjandi þeirri skoðun, alveg frá því að þegar við vorum í 10.bekk og fórum þangað í skólaferðalag.

Þeir sem vilja nálgast myndina af Herði í stærri upplausn og betri gæðum, hafið samband við mig og við getum rætt um verð. Verst að jólin eru liðin, því að myndin hefði verið mjög hugguleg í jólapakkann.

Bros

Svo verður þessi líka að fara með, fyrir þá sem hafa ekki séð mig í lengri tíma.

3 Responses to “Bara svona aðeins…”

  1. Dagrún said

    Vá ég var næstum búin að gleyma að þú litir svona út!

  2. Lókalisminn verður aldrei of oft kveðinn. Svalirnar hjá Herði standa alltaf fyrir sínu.

  3. Arnar said

    hva er í gangi hérna

Leave a Reply