Hversdagstíðindi

February 7, 2007

heidarlitil1.jpgathro

Rúnar og Arnar kíktu í heimsókn á laugardagskvöldið. Ég er með mjög þægilega stundatöflu. Það hefur samt hvílt á mér um stund hversu rómantískt það hefur verið að vera “bara” háskólanemi, vera “bara” ljóðskáld, vera “bara” lífskúnstner. Í dag eru menn svo margt. Ég kann ekki við það, ég hef t.d. stundum alltof lítinn tíma til þess að einbeita mér að náminu vegna þess að ég þarf að fara að gera eitthvað annað, eitthvað sem tengist ekki náminu. Hver segir svo sem að það sé námið sem sé það sem eigi að hafa forgang? Jú ég held að það ætti að vera þannig.

Maður þarf bara að vera svalari.

Við ræddum um þetta, við Heiðar. Svo komumst við að því að Atli Harðarson er okkar helsta átorítet þessa daganna, og hefur lengi verið. Ég skoðaði t.d. um daginn gömul heimspekiverkefni sem að ég gerði hjá honum meðan ég var í FVA, hann lagði gríðarlega vinnu í þau svör sem að hann gaf nemendum sínum til baka við verkefnaskil. Fannst stundum eins og aðrir menntaskólakennarar hefðu mátt taka slík vinnubrögð til fyrirmyndar. Hann var ekki bara að benda á það sem manni misfórst, heldur lagði hann alltaf hinar og þessar úrlausnir og skrifaði langar ræður um hina og þessa heimspekinga sem að tengust hverju efni fyrir sig.

Annars stefni ég á það að skirfa hér beinskeittan pistil á næstu dögum, í takt við áðurgefin loforð.

Sólarlag sed fra Borg

6 Responses to “Hversdagstíðindi”

  1. hæ gummi minn, vildi bara kvitta fyrir innlitið þó hefði ég ekkert á móti því að sjá fleiri myndir sem u hefur verið að taka á nýu velina :) en ég fretti að þið hafið verið með útlandabíó i fyrradag, frekar fúl af missa af því en ég heimta þá bara einkasýningu þegar ég kem heim :) samþykkt ? farið vel með ykkur.
    lovju kv sigga

  2. Hörður said

    já gott útlandabíó sko, mjög gaman. Leiðinlegt fyrir þig að missa af því.

    Komdu svo með eitthvað beinskeytt vinur, mig langar að finna fyrir reiði í gegnum skrifin þín.

  3. Dagrún said

    Já ég hefði líka verið til í að sjá myndbandið. Kemur mér samt á óvart að Rúnar eða Hörður voru til í að sýna það, nema það hafi verið klippt?? Voruð nokkuð skrautlegir! hmm… En voða er nýja myndavélin að taka fínar myndir! Sniðugt þetta apparat. Þarf virkilega að fara að fjárfesta í einu slíku! Jæja nú fara myndirnar þínar að koma ú interrailinu. Elsa bíður spennt eftir að fá að sjá brot af því sem við eigum í vændum !
    Kveðja til Heiðars. Mamma býður eftir honum í kaffi.

  4. Hörður said

    hmm Rúnari var held ég nokkuð sama þó að við sýndum það þar sem að hann var ekkert með í ferðinni. Hvað mig varðar þá er ekkert þarna sem að sakbendir mig á neinn hátt við nein atvik og ég mun koma til með að neita öllum ásökunum sem að á mig verða bornar. Sérstaklega varðandi einhverja borgun sem að ég á að minnst á að ég myndi sjá um. Ég tel það rangt að ég yrði gerður ábyrgur gegnt einhverju sem að ég segi í hita leiksins. nei ég er bara að bulla, ég tek út mína ábyrgð. Vita fáir hvað ég er að tala um

  5. Gummi said

    Ég veit ekkert hvað varð um þessar myndir úr Evrópuferð hinni fyrri. En þær eru sosum inni á tölvunni minni þannig að þær hljóta að líta dagsins ljós að nýju.

  6. Dagrún said

    núú voru ekki tekin saman myndböndin úr báðum ferðum. . .

Leave a Reply