Menn sem vakna ekki á morgnanna, þeir geta ekkert!
March 22, 2007
Það er nú bara þannig. Nú fer að líða að prófum hjá mér, og ég hef mikla löngun til þess að standa mig vel þessa önnina. Ég er reyndar í 5 áföngum þannig að álagið er umtalsvert, en alltaf nær maður samt að finna sér tíma til þess að gera eitthvað annað en að læra. Sem er svolítið skrýtið, þar sem að ég hef mjög gaman af náminu.
Hvað er þá “the most universal human characteristic, fear or lazyness” (Waking Life). Þetta er úr góðri mynd sem að ég sá einu sinni, en þar velti maður einn fyrir sér spurningunni hvers vegna það eru svo fáir sem að skara framúr, þ.e. koma með vel ígrundaðar akademískar kenningar. Er það ekki bara af því að við erum svö löt?
Ég er allavega hundlatur, ég geri ekkert.
Ég og Hólmí fórum á árshátíð guðrfræðinema um daginn, það var mjög áhugaverð samkoma. Ég var neyddur til þess að segja mjólkurhristingsbrandarann minn fyrir framan alla.
Guðfræðinemar geta skemmt sér vel, og það er algildur og sorglegur misskilningur að þeir séu einhverjir lúðar. Ég er allavega enginn lúði.
Og ekki pabbi og afi heldur.
Skallarnir eru dottnir út í körfunni, því miður. Liðið átti nokkra dapra leiki undir lok tímabils eftir að hafa spilað fantavel framan af móti. Valt er veraldargengi eins og Kristinn R. Ólafsson sagði einu sinni, það er hverju orði sannarra.
Ég fór á bókamarkað í Perlunni um daginn og gerði góð kaup, keypti m.a. Upp á Sigurhæðir eftir Þórunni Valdimarsdóttur á aðeins 1700kr. Mig minnir að bókin hafi verið einhverjum þúsundköllum dýrari fyrir jólin. M. Jocmhumson gæti því eflaust ort vel fallega um Skallagrímsliðið:
“Aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni,
að eigi geti syrt eins sviplega og nú;
og aldrei er svo svart yfir sorgarranni
að eigi geti birt fyrir eilífa trú!
Hann hefur samt eflaust ekki verið að hugsa um Skallagrímsliðið þegar hann orti þetta, en það má þó líkja öllu við allt.
Menn sem vakna ekki á morgnana? Þeir geta ýmislegt en gera náttúrulega ekkert á meðan þeir sofa…fyrir utan að hrjóta og dreyma. Og hundlatur lúði…; hvað á þetta það þýða?
Það er svo gott að fagna hverjum degi og viðfangsefnunum sem hann ber í skauti sínu.
Ég hef oft pælt í því hvers vegna það eru svo fáir sem skara fram úr og hvers vegna letin hindrar mann svo oft í að “gera eitthvað”.
Ég hvorki hef né fæ svar við því og þar af leiðandi held ég bara áfram að vera latur.
En hafðu það gott vinur vildi bara kvitta fyrir mig..
Ég held að við séum öll alveg ofboðslega löt… Myndin , Waking Life, hvað ætli það sé langt síðan þú byrjaðir að tala um hana, og við biðum eftir því að hún kæmi út?… dæmi um leti.. ég er ekki ennþá búin að horfa á hana og hálf skammast mín :S
Vonandi að ég hitti á þig sem fyrst, líður allt allt of langt á milli…
Mikið svakalega eru þið myndarlegt par.
Annars hefði ég viljað sjá þig taka tannlæknabrandarann fyrir fram alla Guðsmenninna, hefur eflaust verið kostulegt!
Sé þig vinur
Bara kvitta fyrir lesturinn. Alltaf ótrúlega skemmtilegt að lesa skrifin þín