Fóstbræður á DVD!
August 27, 2007
Já það má með sanni segja. Ég sá viðtal við Jón Gnarr í blaðinu um daginn þar sem hann fullyrti það að Fóstbræður yrðu gefnir út á DVD á næstunni, helst fyrir jól. Hann óskaði íslendingum sömuleiðis til hamingju með áfangann. Ég þakka honum kærlega fyrir.
Ef eitthvað gott var mótandi fyrir rótlaus og áhrifagjörn unglingsárin í lífi manns, þá var það Fóstbræður. Þvílíkir húmoristar, og svo klassískur húmor, tímalaus. Maður kennir ekki svona grín. Ófá hláturstárin hafa runnið við áhorf þessara þátta.
Ískaldur raunveruleiki kúgaðra eiginmanna. Helga Braga er langbesta leikkona okkar íslendinga. Hún getur brugðið sér í allra kvikynda líki.