Fóstbræður á DVD!

August 27, 2007

Já það má með sanni segja. Ég sá viðtal við Jón Gnarr í blaðinu um daginn þar sem hann fullyrti það að Fóstbræður yrðu gefnir út á DVD á næstunni, helst fyrir jól. Hann óskaði íslendingum sömuleiðis til hamingju með áfangann. Ég þakka honum kærlega fyrir.

Ef eitthvað gott var mótandi fyrir rótlaus og áhrifagjörn unglingsárin í lífi manns, þá var það Fóstbræður. Þvílíkir húmoristar, og svo klassískur húmor, tímalaus. Maður kennir ekki svona grín. Ófá hláturstárin hafa runnið við áhorf þessara þátta.

Ískaldur raunveruleiki kúgaðra eiginmanna. Helga Braga er langbesta leikkona okkar íslendinga. Hún getur brugðið sér í allra kvikynda líki.

2 Responses to “Fóstbræður á DVD!”

  1. DD said

    hehehe.. þessir þættir eru óendanlega fyndnir! Enda tókum við upp hvern einn og einasta fyrir Bjarna (sem var þá í Noregi).
    Og ég tek undir með þér að Helga Braga er besta leikona íslendinga og ég er ótrúlega glöð að einhver skildi loksins segja þetta! Fólk virðist nenfnilega ekki vera sammála mér með hana!
    Fyndið að rekast á ykkur. Þið eruð greinilega í lúxus bakaríunum eins og við :o )

  2. Sölvi said

    hva segiði, takk fyrir síðast. Er ekki veturinn lagstur vel í þig og tímabært að koma með færslu um lífið og tilveruna hvernig guðfræðineminn túlkar það, ávallt góð lesning:)

Leave a Reply