Jólablogg

December 24, 2006

Arnar og Heidar a sidustu aramotumAðfangadagur kominn. Ég hef bara hreinlega ekki haft neinn í að láta undirbúninginn síast inn, ég var bara að klára prófin á dögunum og fyrr en varir eru komin jól. Ég er svo líka löngu hættur að skrifa harða þjóðfélagsgagnrýni á þetta blogg, annaðhvort er ég búinn að sætta mig líðandi ástand eða bara hef gefist á upp á öllu rausi.

Ég fór í stúdentsveislu hjá Bjarna og Gunnari á föstudag, það var mjög gaman og komumst við heim á endanum eftir vonskuveður.  Annars var Baldur frændi að kaupa fyrir mig Canon EOS 400d og tvær linsur í fríhöfninni, hlakka til að prufa græjuna, lifi efnishyggjan og kapítalið.

Hvar maður verður um áramótin er óráðið, það er víst skemmtistaðahallæri í heimabyggðinni þetta árið og vinir og vandamenn eru í öngum sínum að reyna að hagræða örlögum sínum á gamlárskvöld. Ég held að menn þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu.

Arnar Þór varð á dögunum stúdent. Mér finnst það ótrúlegt!

ps. Ég man í sumar kom ég því að orði við Hörð að mér fannst ég ekki eins póetískur í hugsun og vel máli farinn. Hörður sagði að þetta væru sígaretturnar. Hvað sem því líður þá óska ég mér orðaforða í jólagjöf.

Styttist allt styttist

November 29, 2006

Hörður bregður á leikÞað styttst í próf, styttist í jólin, styttist í næsta vor, sumar, haust og næsta vetur. Þetta styttist allt saman. Nú er ég nærri búinn með eina önn í Guðfræði, og kann svona líka rosalega vel við mig. Námið er krefjandi og áhugavert, en mest þykir mér þó koma til þess góða anda sem virðist ríkja innan veggja deildarinnar. Oftar en ekki er maður tekinn tali ad eldri nemendum og kennurum, sem eru gestrisnin uppmáluð og það virðist sem að það sé guðs lifandi fegið að fá ungt fólk inn í deildina. Ég er allavega mjög sáttur við viðmótið, og feykilega sáttur sömuleiðis við smæð deildarinnar, sem felur óneitanlega í sér meiri nærveru við bæði kennarann og samnemendur. Sem er gott. Ég held ég myndi ekki höndla það vel að sitja í 200 manna stútfullum sal í kennslustund. Auk þess þoli ég illa samkeppni. Ég hefði kannski bara átt að fara í Húsmæðraskólann (ath. þetta er ekki skot á húsmæður, heldur einungis vinalega ábending á það hvað skólinn er smár)?

Skallagrím gengur vel í körfunni, þeir eru búnir að vinna 8 leiki í röð núna og virðast vera á réttri braut. Áhugi minn á íslenskum körfubolta er mjög sérkennilegur, ég virðist hafa smitast af þessu frá vinum mínum, á svipuðum tímapunkti og fótboltaáhugi minn fór dvínandi. Þetta var ágæt “kúplun” og er stattið á KKÍ.is orðin sorglega stór þáttur af mínu daglega amstri.

Bjarni gisti hjá okkur Heiðari um helgina, og í tilefni af því skelltum við okkur út á lífið á laugardagskvöld. Ég var svo rekinn á fætur snemma á sunnudag til að hjálpa mömmu og pabba í íbúðinni sem þau voru að kaupa. Ég var engan veginn í stakk búinn fyrir það. Það var gaman að sjá Bjarna, long time no see.

Hörður minnist á það á bloggsíðu sinni að hann ætli að koma heim í jólafríinu, það vona ég. Þá getur maður endurupplifað gamlar morgunstundir á svölunum, og átt langar og misinnihaldsríkar samræður um lífið og dauðann, körfubolta og Rúnar Óla.

Við reynum þó að hafa þetta sígarettulaust að sinni, þar sem ég er að reyna að hætta að reykja. Ég komst að því með tíð og tíma að reykingar mínar virtust gera mig óvelkominn og hreinlega sóðalegan hjá mínum nánustu. Það er líka vísindalega sannað að þetta er bölvaður óþverri, og ég geri mér fyllilega grein fyrir því. Það er ótrúlegt hvað sígarettur geta haft tangarhald á manni. En ég hef verið reyklaus í nærri viku, og ætla mér að halda því áfram. Hef þó reynt þetta nokkrum sinnum áður, en fall er víst fararheill!

Gamlar myndir

November 18, 2006

Geir og Hörður àRijeka

Var alveg búinn að gleyma að þessar myndir væru á netinu, myndirnar frá reisunum sem við fórum í sumarið 2005. Setti link á þær fyrir ofan.

Svo breytti ég heitinu á síðunni, það kom á daginn að spænskumællandi perrar höfðu verið að skoða myndir af mér og félögunum, þar sem þeir höfðu skrifað “putas” á leitarvélar í löndum eins og Argentínu, Mexíkó og jafnvel Úrúgvæ. Ég vil ekki að einhver Úrúgvæi sé að skoða myndir af mér á sundskýlunni, hvað þá af Herði á sundskýlunni!

Nóvember!

November 14, 2006

Já, það er kominn nóvember. Ég sit hér heima í litlu kjallaraholunni á Túngötunnio og hripa niður þetta blogg, sem hefur ekki gerst í háa herrans tíð.

Það er undarlegt hvað menn breytast oft fljótt. Ég man að það var bara í sumar sem ég ákvað að fara í Guðfræði, ég spurði strákanna þegar við vorum úti hvort ég ætti að gera það. Þeir hvöttu mig nú bara til þess, og töldu að ég ætti betur heima þar en í Heimspekinni. Eflaust voru þeir bara orðnir þreyttir á svartagallsrausinu sem fylgdi heimspekináminu hjá mér.

Hörður er fluttur á Hornafjörð, en ég hef vart orðið viðskila við hann Heiðar í eina klukkustund síðan í sumar. Þannig er mál með vexti að við leigjum saman, og ég sé ekki fyrir endann á þeirri sambúð, sem er ágætt. A-mennska Heiðars getur þó stundum farið í taugarnar á mér. Þeir sem þekkja Heiðar vel vita að hann er með allt sitt á hreinu, mætir aldrei of seint og er gríðarlega áreiðanlegur í einu og öllu. Ég er ekki þannig, ég er B-maður. Það getur stundum verið erfitt fyrir A og B menn að búa saman.

A-maðurinn að borða hamborgaraTökum dæmi: Um daginn svaf ég yfir mig, og vakna við það að Heiðar stendur við rúmstokkinn hjá mér, nýkominn úr sturtu og með rjúkandi heitt kaffi, og þetta óþolandi smjörglott sem sýndi hversu mikið hann kættist yfir B-mennsku minni. Mig langaði að drepa hann. En ég gerði það ekki. Það fer líka í taugarnar á honum að ég loka aldrei klósettinu og skola ekki af diskunum mínum. Þá langar honum að drepa mig. En hann gerir það ekki.

Hörður er hinsvegar C-maður, og er því líkur ömmu skrattans í samanburði við mig, og hvað þá Heiðar. Ef að hann byggi hérna líka, þá held ég að allt færi í bál og brand:) Ég hlakka nú til að hitta hann í jólafríinu og vona að hann erfi ekki þetta ekki við mig.

Vid erum staddir tessa a netkaffi i Cannes a fronsku rivierunni. Sidan eg let sidast vita af okkur vorum vid fornarlom hitabylgju i Athenu. Sidan ta hefur vaegast sagt mikid a daga okkur drifid, og eftir ad vid toku, ferjuna til Bari fra Grikklandi hofum vid stoppad i Rom og Florens, og erum nuna ad byrja okkar 3ja dag i Cannes. Vid forum i kvold til Barcelona og verdum komnir tangad i fyrramalid. Eins og eg sagdi hefur ymislegt gerst sidan i Grikklandi og mikid um laeti og fjor en ekkert alverlegt og to eru, vid allir heilir heilsu, fyrir utan mig, eg held eg se med hita. Eg aetla ad skella inn nokkrum myndum en eins og adur sagdi ta er myndavelin odyra i godu rugli, brotin skjar og vesen, tannig myndirnar eru svolitid serstakar.

Heidar og Hordur munda svipinn fyrir framan Peturskirkjuna 

Gudmundur og Hordur fara med gamanmal a toskonskum veitingastad

Hordur brukar videovelina a strondinni i Cannes

51 stig i Athenu!

August 21, 2006

A kaffihusi i AthenuJa ta er tad komid a hreint, i dag var heitasti dagur arsins i Athenu, hofudborg Grikklands, og ad sjalfsogdu vorum vid trir a fullri ferd i dag. Reyndar nurludum vid adeins inniveruna, en tad var ekkert skarra tar sem vid vorum a skelfilega oloftkaeldu gistiheimili. Heidar fekk ma. ad kynnast hitanum i nott tegar drengurinn var naerri kafnadur af loftleysi og skitalykt. En svona er tetta bara, blessurnarlega vorum vid samt reknir af gistiheimlinu i morgun og komum okkur a mikid odyrara heimili a betri stad i baenum. Tegar hitinn var sem mestur lagum vid samt i einhverju moki og saum bara islenskt bergvatn og nordlenskar blomarosir ad mjolka kyr. En sarlega fjarri lidandi stund.

En tegar lida tok a daginn for astandid ad verda manneskjulegra og aetludum vidOaedri endinn a menningunni felagarnir ad kikja a Akrapolisarhaed en tad for ekki betur en svo ad ta var bara buid ad loka. Loka? Tannig vid forum bara a morgunn. Vid bordudum hinsvegar godan kvoldverd vid raetur bokasafnsins freaga og haedarinnar. Allt saman mjog tilbakahugsandi.

A morgun tokum vid lest til Patras og tadan tokum vid ferjuna til Bari a Italiu.

 Vid erum lika i leidinlegu myndavelaveseni, eins og sest eru myndirnar sem vid tokum bara svarthvitar. Tad er alveg flott og allt tad en tanning er mal med vexti ad vid brutum skjainn a velinni og getum ekki breytt tessari stillingu. Vid reynum ad graeja tetta.

Hordur eins og hann leggur sig

I Frankfurt

Heidar gerir allt vitlaust a lestarstod i Berlin

Harid er farid

I Bosniu 

Hordur i evropskri kvoldsol

Farid fra Skopje…

August 18, 2006

Felagarnir i SkopjeJaeja ta erum vid ad fara fra Skopje, og makedoniu i heild sinni. Komum herna fyrir 3 dogum og er dvolin buin ad vera yndisleg. Hittum Dimi og Jovan her i borg og er Jovan buinn ad hanga med okkur 24 tima a dag og syna okkur i grofum drattum uta hvad Makedonia gengur.

Vid vorum 2 daga vid

Ohrid vatnid og graeddum tar sma brunku. Eins og pabbi sagdi er gott ad vera med heimamenn.

Vid forum i fyrramalid til Grikklands og ta verdur siminn minn vonandi kominn i lag.

Meira seinna

Slappad af i Belgrade

August 14, 2006

Heidar og Hordur otrulega hressir i BelgradJa her sitjum vid Heidar a hoteli i serbnesku borginni Belgarde, og latum timann lida, en eftir um 4 tima fer lestin okkar til Skopje i Makedoniu tar sem vid aetlum ad hitta fyrir felaga okkar Jovan og Dimitar.

Satt ad segja ta hef eg komid a meira spennandi stadi en Belgrade, en borgin er falleg tratt fyrir miklar rigningar og mikil thyngsli, baedi i mannlifi og odrum samskiptum.

En eg er feginn tvi ad hafa komid hingad, her redu Milosevic og felagar og stjornudu tjodarmordunum a Bosniskum muslimum i Sebrenica.

Vid forum ekki til Sebrenica en forum to til Mostar, sem vard serstaklega fyrir bardinu a yfirgangi Serbanna.

Runtad i Hvar?

August 11, 2006

Vid utrymingarbudirnar i Auswitz

Nu situr pistlahofundur a NetKaffi i Split i Kroatiu, bidandi olmur eftir rutu til Mostar i Bosniu. Tad na engir lestarteinar yfir landamaerin Kroatia/Bosnia, skiljanlega. Annars hefur ferdin verid mognud, eins og buist var vid. Vid hofum komist i navigi id margar oraunverulegar adstadaedur, margar teirra marka oskyr mork drauma og veruleika. Vid hofum synt med gamalli konu a husthaki i Austurriki, keyrt gulan blaejubil a eyju i Adriahafinu, og ordid tess varir ad kvenfolk a Balkanskaga er aedi fagurt. Einnig forum vid i utrymingarbudir Nasista i Auswitz, varla fagurt tad. Hordur situr her med mer og skrifar grein sina i Frettabladid, Heidar situr a afvikinni lestarstod og bidur eftir okkur, eg vona ad hann se ekki ordinn pirradur.

 

Hordur i Hratvosku ongstraeti

Eg tel okkur hafa verid heppna med godmennsku naungans hingad til i ferdinni, og eg byst sosum taepast vid tvi ad einhver heljarinnar skor komi i murinn, en tad er aldrei ad vita. Eg tok tad ekki fram her fyrir ofan ad vid hittum fraenda minn, storvin og snilling, Halldor Asgeirsson i Kraka i Pollandi fyrir nokkrum dogum sidan. Tar snaeddum vid saman hadaegisverd ad haetti innfaeddra, asamt fridu foruneyti Halldors.

 

 

 

Heidar bilstjori a Gulu blaejunni

Tad er annars engin leid ad vera ad segja einhverja ferdasogu herna, vid skrifum bara dagbok og reynum ad muna sem mest. Ferdin til Hvar i gaer var samt toppurinn hingad til, hvilik Guds blessud fegurd sem blasti vid okkur a thessu litla skeri i Adriahafi, og vissulega var tar olid sotrad i hamingjunar samraemi

 

 

 

…and i misss you